Kynntu þér vöruúrval Automatic betur

Bremsur skipta sköpum. Við eigum á lager bremsudiska, bremsuklossa, bremsuborða, gormasett og þreifara frá Bremsi, Ashika, Metzger og SCT fyrir flestar gerðir ökutækja. Eigum einnig bremsudælur, bremsunippla, bremsuslöngur og bremsurör.

Wynn’s bætiefnin standa fyrir sínu. Wynn’s er fyrirtæki sem var stofnað árið 1939 í Bandaríkjunum og framleiðir hágæða bætiefni og aðrar vörur sem tengjast viðhaldi bíla og tækja. 

Við erum með allskonar. Festingar, smellur, skrúfur, rær, hnoð, gormar, tengi, klemmur og margt fleira frá Restagraf Frakklandi. Vörulistann má skoða hér.

Er þörf á hreinsun? Þú færð öll hreinsiefni sem þú gætir mögulega þurft hjá okkur. Þau eru frá Mjöll Frigg. Einnig búum við yfir hreinsiefnum fyrir ökutæki og verkstæði frá Cartec frá Hollandi og Mannol frá Þýskalandi.

Við eigum kerti, háspennukefli, alternatora og startara frá Denso, Ashika og Metzger í miklu úrvali fyrir flestar gerðir ökutækja.

Einfaldaðu verkið, sparaðu tíma og fyrirhöfn með lyftum frá okkur.

Er kominn tími á smurningu? Mannol vörurnar frá Þýskalandi, fást í stórum og smáum umbúðum. Smurolía, frostlögur, gírolía, skjálfskiptivökvi, stýrisvökvi, glussaolía, feiti, bremsuvökvi, bætiefni, ryðvörn, sprey og margt fleira.

Öruggari akstur og betri yfirsýn með vatnshrindandi framrúðuefni frá Ombrello sem endist mánuðum saman.

Halogen, Xenon eða LED? Við eigum ríkt úrval af hágæða perum af flestum gerðum en perurnar okkar eru frá Spahn og SCT Þýskalandi. Einnig eigum við mikið úrval af LED vörum. Kastara, LED Bar, aðalljósasett, þoku- og stöðuljósasett, vinnuljós, USB ljós og margt fleira.

Er ökutækið þitt nógu rafmagnað? Bílarafgeymar, neyslugeymar, mótorhjólageymar, vörubílageymar, vélsleðageymar, hleðslutæki, vaktarar, iðnaðarrafgeymar, startkaplar, pólskór, fornbílarafgeymar og kaplaskór í miklu úrvali.

Olíusíur, smursíur, loftsíur, miðstöðvarsíur, eldsneytissíur, glussasíur, pottasíur, loftræstistokkasíur og kaffisíur. Þú færð síuna þína hjá okkur.

Súrefnis-, loftflæðis- og ABS- skynjarar. Mikið úrval af hágæða skynjurum frá Denso og Metzger fyrir flestar gerðir ökutækja.

Þetta er allt í kaffinu. Við þjónustum verkstæðin í landinu með eðalkaffi frá Te & Kaffi og að sjálfsögðu ert þú alltaf velkomin/nn í kaffi til okkar.

Við erum þjónustu aðili FTZ á Íslandi. FTZ er danskt fyrirtæki sem bíður uppá hágæða bílavarhluti í allar gerðir ökutækja á góðu verði. Þú færð því hágæða bílavarahluti á frábæru verði hjá okkur.